Náttúruvá: Ógnir, varnir og viðbrögð

Almenn rit

Náttúruvá: Ógnir, varnir og viðbrögð

Ari Trausti Guðmundsson

Veldu snið

5.490 kr.

Til á lager

  • „Ari Trausti Guðmundsson skynjaði þörfina og bók hans Náttúrvá, ógnir, varnir og viðbrögð er upplýsandi, greinagóð og hjálpleg. Ari Trausti skrifar skýran og aðgengilegan texta og tekst einnig að gera efnið áhugavert.“

    Lifðu núna · Steingerður Steinarsdóttir

Um bókina

Margvísleg náttúruvá hefur sannarlega fylgt landsmönnum frá upphafi en undanfarið hefur atburðum heldur fjölgað, meðal annars samfara áhrifum loftslagsbreytinga og auknum ágangi á landið. Eldgos, jarðskjálftar, skriðuföll, flóð og gróðureldar hafa verið efst á baugi síðustu árin og höggin stundum fallið óþarflega nærri okkur.

Bókin er mikilvægt innlegg í þessa umræðu. Hún geymir ítarlegan fróðleik um flestar hættur sem stafa af náttúrunni, fjallað er um forvarnir, ásamt skipulagi og uppbyggingu náttúruvarna. Hún varðar alla sem landið byggja og um það fara.

Jarðvísindamaðurinn Ari Trausti Guðmundsson býr að fjölþættri gagnlegri þekkingu og reynslu þegar kemur að náttúruhamförum og viðbrögðum við þeim.

Karfan þín

Valmynd