Ormstunga: Þriggja heima saga #3

Barna- og unglingabækur

Ormstunga: Þriggja heima saga #3

Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson

4
Veldu snið

3.290 kr.

Til á lager

  • „… fullvaxin fantasía fyrir allan aldur … þessi lesandi hér, sem ekki hefur mikið dálæti á fantasíum og furðusögum, heillaðist upp úr skónum og gat varla lagt bókina frá sér fyrir spennu. Hér er einfaldlega verið að segja áhugaverða, vel byggða og vel hugsaða sögu með vísunum í allar áttir, áhugaverðri framvindu og persónum sem vekja áhuga og samlíðan … ekki bara spennandi og áhugaverð fantasía heldur breið og margradda skáldsaga sem talar beint inn í samtímann … Miðað við endir þessarar sögu er augljóst að það mun draga til verulegra tíðinda í næstu bók. Við bíðum í ofvæni.“

    Fréttablaðið · Friðrika Benónýsdóttir

Um bókina

Séð hef ég heimana þrjá,
satt eðli manna ég man,
gjá mikla snerti og fann,
fornt hljóma, djúpt óma, kall.

Eftir sprenginguna miklu undir Velajaborg er hópurinn sundraður – Ragnar hrapar niður á gríðarmikla glersléttu þar sem ekkert líf þrífst, Sirja rankar við sér á ókunnri strönd og Breki vaknar í forboðnum helli fullum af gulli og gimsteinum. Ekkert þeirra veit hvar vinir þeirra eru niðurkomnir en vonin um að finna þá aftur heldur í þeim lífinu. Á meðan berjast eftirlifendur Vébakka fyrir tilveru sinni, óvitandi um þær fornu ógnir sem aftur eru vaknaðar til lífsins. Svo virðist sem tilraunir Ragnars, Sirju og Breka til að sækja hjálp vitringanna hafi brugðist og að tíminn sé á þrotum. Það er margt, svo margt sem myrkrið veit …

Ormstunga er þriðja bókin í Þriggja heima sögu. Fyrri bækurnar hlutu frábærar viðtökur og fyrir þá fyrstu fengu höfundarnir meðal annars Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana.

Karfan þín

Valmynd