Um bókina
Þessi þrauta- og litabók er byggð á persónum bókanna Ævintýri Petru papriku og Petra paprika og innrásin. Í bókinni fá myndir og persónur úr bókunum um Petru papriku nýtt hlutverk og bjóða upp á fjölbreytt verkefni og skemmtun.
Bókin er stútfull af skemmtilegum þrautum, litamyndum og áskorunum fyrir forvitna krakka. Hér er hægt að leysa ráðgátur, rata í gegnum völundarhús, finna falda hluti, lita, teikna og glíma við alls konar heilabrot.
Bókin hentar vel fyrir notalegar stundir heima, í ferðalaginu eða þegar ykkur langar í skjálausa samveru. Sum verkefnin getur barnið leyst sjálft en önnur verða enn skemmtilegri þegar fjölskyldan hjálpast að.













