Saga 2026 LXIV: 2

Almenn rit

Saga 2026 LXIV: 2

eftir Ritstjórar: Sveinn Máni Jóhannesson og Vilhelm Vilhelmsson

2026 · 260 bls.

Veldu snið

5.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Mynd á kápu Sögu er plakat sem listamaðurinn Dieter Roth hannaði til að auglýsa tónleika nemendahóps úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands í Sviss árið 1980. Þar flutti hópurinn tónverk eftir austurríska myndlistarmanninn Hermann Nitsch. Tónleikarnir voru um margt sérstakir, ekki síst vegna þess að enginn þátttakenda hafði reynslu af tónlistarflutningi eða tónlistarsköpun. Flutningurinn var afrakstur gestakennslu Nitsch við skólann fyrr sama ár. Í grein sinni fjallar Davíð Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands, um aðdraganda samstarfsins og áhrif þess á íslenskt listalíf á níunda áratug síðustu aldar.

Í heftinu birtast að þessu sinni þrjár ritrýndar greinar. Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir fjallar um Þóru Pétursdóttur Thoroddsen (1847–1917), framlag hennar til íslenskrar myndlistar og þau áhrif hennar á mótunarárum kvenréttindahreyfingarinnar hér á landi um aldamótin 1900 sem hingað til hafa lítið verið rannsökuð. Hanna Guðlaug varpar ljósi á víðtækt tengslanet Þóru innan kvennahreyfingarinnar og dansks listalífs og sýnir hvernig hún nýtti þau tengsl íslenskri kvennahreyfingu og myndlist til framdráttar.

Gunnar Marel Hinriksson færir í sinni grein rök fyrir því að Ísland hafi verið gert að amti þegar í kjölfar Kópavogsfundarins árið 1662, þar sem einveldi konungs var samþykkt. Samkvæmt þeirri túlkun varð Henrik Bjelke (1615–1683), fyrrverandi lénsherra, þá amtmaður yfir öllu landinu, en hingað til hefur verið talið að Ísland hafi ekki verið gert að amti fyrr en eftir lát hans.

Kolbeinn Sturla G. Heiðuson rannsakar eignir vinnuhjúa í Skagafirði um miðja nítjándu öld með hliðsjón af dánarbúsuppskriftum. Hann dregur fram ólíka efnahagsstöðu vinnuhjúa og setur hana í samhengi við bakgrunn þeirra og aðstæður. Jafnframt sýnir hann hvernig vinnuhjú nýttu vist sína til að safna eignum með það fyrir augum að hefja sjálfstæðan búskap síðar á ævinni.

Í þáttnum Skemmtilegt skjal fjallar Már Jónsson einnig um dánarbú, en að þessu sinni um nýlega fundnar heimildir um eignir hjónanna Eggerts Ólafssonar (1726–1768) og Ingibjargar Guðmundsdóttur (1734–1768). Þau fórust bæði þegar bátur þeirra strandaði á Breiðafirði, eins og kunnugt er. Már rekur stuttlega tilurð heimildarinnar og birtir hana í heild sinni.

Að lokum eru í heftinu sjö ritdómar.

Karfan þín

Valmynd