Saga tónlistarinnar

Almenn rit

Saga tónlistarinnar

Árni Heimir Ingólfsson

Veldu snið

9.990 kr.

Til á lager

  • „… seint verður oflofað framtak á við hið nýja ritverk Árna Heimis er beinir á tæru og auðskildu máli forvitni almennings að perlum vestrænnar tónsköpunar … bókin hin skemmtilegasta ígripslesning nánast hvar sem niður er komið … Tónlistarsaga Árna Heimis fyllir skarð sem íslenzk bókaútgáfa þarf loks ekki lengur að skammast sín fyrir.“

    Morgunblaðið · Ríkarður Ö. Pálsson

Um bókina

Tónlistin er töfrum slungin listgrein sem ekki verður til í tómarúmi. Hún mótast af tíðaranda og atburðum á sviði heimsmálanna, trúarbrögðum og kirkjupólitík, afstöðu valdhafa og smekk almennings á hverjum tíma.

Í þessari bók er fjallað á aðgengilegan hátt um vestræna tónlistarsögu allt frá kaþólskum kirkjusöng í upphafi 9. aldar til nýjustu hræringa í samtímanum. Hér má til dæmis fræðast um uppruna barokksins við hirðir á Norður-Ítalíu, áhrif upplýsingarinnar á Níundu sinfóníu Beethovens, samspil tónlistar og þjóðernisvakningar á 19. öld og áhrif stjórnmála 20. aldar á tónsköpun vítt og breitt um Evrópu. Lykilverk tónbókmenntanna fá sérstakt vægi en einnig er litið vítt yfir sviðið og rýnt í tónlistina bæði sem samtímaspegil og farveg tjáningar.

Saga tónlistarinnar er fyrsta yfirlitsritið um tónlistarsögu eftir íslenskan höfund og hentar jafnt tónlistarfólki, tónlistarunnendum og tónlistarnemum, sem og öllu áhugafólki um listir og menningu.

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur hefur getið sér gott orð fyrir texta sína um tónlist, meðal annars í efnisskrám Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann ritaði bókina Jóns Leifs – Líf í tónum, hefur stundað umfangsmiklar rannsóknir á íslenskri tónlistarsögu og komið fram á fjölda tónleika sem píanóleikari og kórstjóri.

Karfan þín

Valmynd