Strákurinn með sægrænu augun

Barna- og unglingabækur

Strákurinn með sægrænu augun

eftir Vilhelm Anton Jónsson

2026 · 218 bls.

Veldu snið

5.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Strákurinn með sægrænu augun er æsispennandi ævintýrasaga ætluð efstu bekkjum grunnskóla. Framvindan er hröð og kemur sífellt á óvart, persónurnar litríkar og myndskreytingarnar hreinustu listaverk.

Tóbías Mar hefur alist upp um borð í sjóræningjaskipinu Söng sírenunnar undir verndarvæng Sigurmars Sjólfs skipstjóra. Sjómennskan er Tóbíasi í blóð borin, hann þekkir hvern krók og kima skipsins og vinkona hans, skipskötturinn Salt, fylgir honum hvert fótmál.

Dag einn veita herskip keisaraveldisins Sírenunni grimmilega eftirför. Þá kemst Tóbías óvænt að því að í honum búa magnaðir kraftar sem tengjast hafinu og við tekur mikil hættuför um nýja og framandi heima.

Karfan þín

Valmynd