Stríð og kliður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2021 | 144 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2021 | 144 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Stríð og kliður er leiftrandi hugmyndarík og ögrandi bók sem talar til lesenda á öllum aldri. Höfundur sækir jöfnum höndum í eigið líf og skrif vísindamanna og skálda í aldanna rás og útkoman er frumleg og hrífandi glíma við margar stærstu spurningar samtímans.
Þurfum við að endurhugsa samfélög okkar frá grunni? Eru það hinir gæfustu sem lifa af? Er heimurinn virkilega að farast? Búum við í tækniræði? Hvað verður um óhemjurnar?
Fyrir nokkrum árum féllust Sverri Norland hendur andspænis þeim tröllauknu áskorunum sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir — mengaðri náttúru, útrýmingu dýrategunda, yfirtöku tækninnar, samþjöppun auðs á fárra hendur. Hér rekur hann hvernig honum tókst að vinna sig út úr þeirri lægð og á vit bjartsýnni aðferða til að takast á við krefjandi verkefni framtíðarinnar.
Sverrir Norland er landsþekktur fyrir margbreytileg bókmenntatengd störf. Hann er rithöfundur, þýðandi, útgefandi og gagnrýnandi í Kiljunni og hefur auk þess látið að sér kveða á sviði umhverfismála. Stríð og kliður er ellefta bók hans.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 2 klukkustundir og 47 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hægt er að hlusta á hljóðbrot úr bókinni hér:
4 umsagnir um Stríð og kliður
embla –
„Stríð og kliður er skapandi svar höfundar við þessu ástandi, sem hann vill kalla svo, og þótt hann bjóði ekki upp á neina patentlausn er þetta nauðsynleg og mikilvæg bók í þessa umræðu.“
Gauti Kristmannsson / Víðsjá
embla –
„Í þessari bók eru heillandi heimspekilegar vangaveltur um nútímann sem einatt byggir á því sem á undan kom. Tímabær og mikilvæg bók.“
Vigdís Finnbogadóttir
embla –
„Á síðum þessarar bókar gefst okkur tækifæri til þess að hugsa um hið óhugsandi. Andspænis stærstu áskorun allra tíma, loftslagshamförunum, teflir Sverrir Norland fram ímyndunaraflinu, og lesandinn nýtur þess að af því á höfundurinn sjálfur nóg.“
Sjón
embla –
„Sverrir Norland skrifar af ástríðu og einlægni um heiminn og framtíð hans. Hann heldur lesanda við efnið með frjóum texta og hugleiðingum sem eiga erindi.“
Ólafur Jóhann Ólafsson