Sveinn Pálsson ritsafn

Almenn rit

Sveinn Pálsson ritsafn

Ritstjóri: Már Jónsson og Sveinn Pálsson

Veldu snið

92.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Sveinn Pálsson (1762–1840) var einn helsti brautryðjandi íslenskra náttúruvísinda, læknir og frumkvöðull í rannsóknum á jöklum, eldvirkni og gróðri á Íslandi. Í þessari heildarútgáfu eru ritsmíðar hans, ferðabækur, bréf og dagbækur að finna í sjö bindum í glæsilega hannaðri öskju. Þessi útgáfa er menningarsögulegur viðburður.

Ritsafn Sveins Pálssonar er einstaklega falleg útgáfa í sjö bindum og í veglegri öskju þar sem nostrað er við hvert smáatriði og veitt er ný innsýn í líf og starf fyrsta íslenska náttúrufræðingsins.

Sveinn fæddist á Steinsstöðum í Skagafirði árið 1762, lærði til læknis á Seltjarnarnesi og í Kaupmannahöfn og tók próf í náttúrufræði í Kaupmannahöfn árið 1791 og fékk að því búnu styrk til að rannsaka náttúru Íslands og ferðaðist um landið næstu ár. Hann giftist síðan Þórunni Bjarnadóttur læknis Pálssonar og settist að í Kotmúla í Fljótshlíð en fékk Suður-Vík í Mýrdal sem embættisjörð árið 1809, þá orðinn fjórðungslæknir í vestanverðum Sunnlendingafjórðungi. Hann lést í Vík árið 1840 og er grafinn í Reyniskirkjugarði þar sem veglegur bautasteinn er á leiði hans.

Ritstjóri útgáfunnar er Már Jónsson prófessor en með honum unnu þau Sigrún Jónsdóttir og Jón Kristinn Einarsson sagnfræðingar og doktorsnemar að útgáfunni.

Verkið hannaði Snæfríð Þorsteins.

Aðstoð veittu fjölmargir, svo sem Gottskálk Jensson sem þýddi fjölmargar klausur og texta úr latínu, til að mynda latnesk kvæði Sveins, Ágúst H. Bjarnason sem veitti ráðgjöf varðandi grasafræðileg mál og Sigurður Steinþórsson sem þýddi lista Sveins yfir steina og berg úr latínu á íslensku.

Karfan þín

Valmynd