Umskiptingur

Barna- og unglingabækur

Umskiptingur

eftir Sigrún Eldjárn

2022 · 63 bls.

Veldu snið

3.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Umskiptingur er spennandi saga eftir Sigrúnu Eldjárn þar sem nýjustu tækni er beitt til að leysa gamalkunna þraut úr íslensku þjóðsögunum. Sigrún hefur heillað kynslóðir íslenskra lesenda með sögum sínum og myndum og þetta ævintýri samdi hún samhliða sem bók og leikrit.

Á meðan Sævar fyllir fötuna sína af berjum hverfur Bella systir hans sporlaust. Í staðinn birtist tröllastrákurinn Steini sem veit ekkert hvar hann er og saknar mömmu sinnar. Saman hrópa strákarnir á hjálp og sem betur fer heyrir ofurfjölskyldan í þeim. Á svipstundu birtast ofurpabbi, Ofur-Sól og Ofur-Máni til að leysa vandann en komast fljótt að því að það verður ekki einfalt!

Karfan þín

Valmynd