Um bókina
Hér er sögð saga björgunarsveitarmanna sem lögðu sig alla fram og voru gjarnan í lífshættu á meðan leit og björgun stóð yfir í snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri árið 1995. „Hin hliðin“ á hamfaraatburðunum þar sem enginn varð samur eftir
+++ Tvær konur sem grófust undir flóðunum í langan tíma segja einnig sína sögu svo og björgunarsveitarmenn sem voru aðframkomnir þegar þeir fundu þær.
Við komum líka við í Neskaupstað 1974 og að jarðeldunum á Reykjanesi síðustu árin. Ein af söguhetjum bókarinnar upplifði allar framangreindar hamfarir, ekki síst sem björgunarsveitarmaður á Vestfjörðum árið 1995. Hann segir: „Ég grét eins og krakki … en við vorum allt of stórir og harðir karlar til að setja okkur inn í þessa áfallahjálp. Þessa „vitleysu“ +++ Þetta ár fórust tíu félagar í Slysavarnafélagi Íslands í snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri – þar af sex 12 til 19 ára gömul ungmenni.
„Ég var slösuð inni í frystihúsinu Frosta þegar ég sá björgunarsveitarmennina koma veðurbarða eins og snjókarla til að ná í sig hita. Ég veit að þeir upplifðu hryllilegar stundir sem munu fylgja þeim alla ævi. Ég vil því segja stórt TAKK – ég mun alltaf hugsa til ykkar!“ segir Berglind Kristjánsdóttir sem
missti þrjú börn í Súðavík.
Heimafólk segir frá því hvað það var sumt bugað fyrstu klukkustundirnar áður en utanaðkomandi hjálp barst, sérstaklega frá Ísafirði, og hvað hundar höfðu afgerandi áhrif við leit og björgun +++













