„Ein besta lestrarupplifun síðustu ára“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Hallgrimur Helgason

Hallgrímur Helgason skrifar langa og dúndurskemmtilega grein um skáldsöguna Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur í DV í dag og bendir þar á margt til fróðleiks og umhugsunar, meðal annars athyglisverðan skyldleika hennar við tvo jöfra íslenskra bókmennta: „Endursköpun Auðar sjálfri sér minnir helst á sjálfsmynd Þórbergs í Ofvitanum og íslenskum aðli,“ segir Hallgrímur: „Þegar fyndnin fer með mann upp af koddanum og fram úr rúminu verður eina hjálp lesandans sú að ákalla meistarann gamla til samanburðar.

Kaflinn þar sem Eyja og Agga fara á „samningafund” með súlustaðaeiganda er einn slíkur sem „ósjálfrátt” flýgur inn í sýnisbók íslenskra bókmennta. … Það sem færir bók Auðar aukabónus er auðvitað tengingin við Gljúfrastein. Og já … hér er viðkvæmt efni á ferð. Því þótt glíma ungrar konu við ofurkarllæga nálægð gamla Nóbels sé erfið, nýtur Auður hennar líka. Ljóminn frá gamla lifir enn. Og lesandinn spyr sig: Værum við svona hrifin af bókinni ef þetta væri „venjuleg” fjölskylda útí bæ? En slíkar vangaveltur eru til einskis. Auður er Auður. Fjölskyldan hennar er fjölskyldan hennar. Og bókin hennar er bókin hennar. Og í henni fer Eyja beint af fundinum með súlustaðaeigandanum, þennan lágpunkt íslenskrar menningar, í mat til ömmu sinnar á Gljúfrasteini, háhöll íslenskrar menningar. Hér myndast stór vídd, og eitthvað segir manni að sumt sé líkt með sumum. Hér birtist ættarstrengur: Við munum öll hin laxnesku einkenni: Snærisþjófur hjálpar Íslandssól, kotbóndi gefur konungi hest, strákur úr Mosó fer til Hollywood. Álíka fjarvíddir myndast í senunni þar sem fjörusúparinn og beitningamaðurinn að vestan, sá skemmtilega nefndi Garri, mætir ömmu Eyju, fjóluhærðri og fjaðurhattaðri á stigapalli. Þar er heilt þjóðfélag á milli. Og stúlkan Eyja.“

Og Hallgrímur spyr: „Hvernig stóð á því að slíkt undraverk hlaut ekki tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna?”

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd