Jónína Leós sérstakur gestur á Women of the World

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jónína Leósdóttir

Jónína Leósdóttir verður sérstakur gestur á Women of the World kvennaráðstefnunni 8-9. mars næstkomandi.

Á ráðstefnunni ræðir breski rithöfundurinn Kate Mosse (upphafskona Orange Prize bókmenntaverðlaunanna, nú Baileys Women’s Prize for Fiction)  við Jónínu um bók hennar, Við Jóhanna,  í Southbank Centre. Íslendingar ættu að kannast við Kate Mosse en hún kom til Íslands árið 2010 og flutti erindi við afhendingu Fjöruverðlaunanna.

Women of the World (WOW) er árleg kvennahátíð sem hleypt var af stokkunum vorið 2012 undir stjórn Jude Kelly, sem er listrænn stjórnandi Southbank menningarmiðstöðvarinnar. Þetta er því í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. WOW fer fram á mörgum stöðum í húsinu, stórum og smáum sölum og berst líka út á lóðina í kringum Southbank Centre sem stendur við Thames-ána, skammt frá The London Eye (útsýnis-hjólinu). Húsið iðar af lífi frá morgni til kvölds, alla helgina. Þarna eru m.a. fyrirlestrar, pallborðsumræður, kynningar, “speed-mentoring” (hrað-leiðsögn) fyrir ungar konur, tónleikar, listsýningar og ótalmargt fleira.

Á undanförnum árum hafa mörg þúsund konur sótt hátíðina hverju sinni en gestir hátíðarinnar þetta árið eiga von á sérdeilis góðu þar sem að nógu er á af taka í þessari einstöku bók Jónínu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd