Fagur fiskur

Almenn rit

Fagur fiskur

Áslaug Snorradóttir og Sveinn Kjartansson

4
Veldu snið

5.190 kr.

Til á lager

  • „Hægt að mæla með þessu vandaða og vel heppnaða verki við allt áhugafólk um skapandi og skemmtilega matargerð.“

    Pressan.is · Björgvin G. Sigurðsson

Um bókina

Þessi skemmtilega og óvenjulega matreiðslubók hefur að geyma uppskriftir og fróðleik úr sjónvarpsþáttunum Fagur fiskur, en markmið þáttanna var að auka fiskneyslu og sýna fólki fram á að matreiðsla á fiski er spennandi en um leið einföld, hvort sem um er að ræða veislurétti eða hversdagsmat. Í gnægtakistu hafsins eru alþekktir fiskar jafnt sem fáséðir, skelfiskur og sjávargróður, og hér er öllu breytt í fjölbreytilega og gómsæta rétti sem allir ættu að geta töfrað fram.

Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari og Áslaug Snorradóttir ljósmyndari stóðu ásamt fleirum að gerð þáttanna og unnu bókina upp úr þeim. Mikill fjöldi skemmtilegra ljósmynda og teikninga er í bókinni.

Fagur fiskur var tilnefnd til alþjóðlegu Gourmand-matreiðslubókaverðlaunanna í flokknum „Best Fish and Seafood Book“.

Karfan þín

Valmynd