Thorsararnir – Auður – Völd – Örlög

Ævisögur

Thorsararnir – Auður – Völd – Örlög

eftir Guðmundur Magnússon

2026 · 405 bls.

Veldu snið

8.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Í augum danska búðarsveinsins Thors Jensen var Ísland land tækifæranna. Eftir að hafa þreifað fyrir sér í verslun sannfærðist hann um að framtíðin lægi í íslenskri stórútgerð. Í félagi við syni sína stofnaði hann togarafélagið Kveldúlf og lagði þar með hornstein að einu mesta ættarveldi landsins – veldi Thorsaranna. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda.

Á blómatíma ættarinnar voru umsvif Thorsaranna mikil og þræðirnir lágu víða – í sjávarútvegi, landbúnaði, utanríkisviðskiptum og æðstu stjórn landsins.

Thorsararnir bárust á í einkalífinu og þeir eignuðust óvildarmenn sem áttu þann draum æðstan að ganga á milli bols og höfuðs á þeim. Undir niðri kraumuðu ýmis fjölskylduleyndarmál.

Saga Thorsaranna er saga mikils auðs og mikilla áhrifa en ekki síst mikilla örlaga.

Karfan þín

Valmynd