
Steinar Bragi hlýtur Tindabikkjuna 2014
Á versta degi ársins (samkvæmt vísindalegum niðurstöðum), 24. janúar 2015, veitti Glæpafélag Vestfjarða Tindabikkjuna í kyrrþey í líkhúsi Gamla sjúkrahússins á Ísafirði. Besta glæpasaga Íslands árið 2014, að mati glæpafélaga, er Kata eftir Steinar Braga. Fær hann að launum glæsilegan verðlaunagrip eftir Pétur Guðmundsson myndlistarmann og 2 kíló af tindabikkju í soðið frá fiskbúð Sjávarfangs…















