Kári litli og klósettskrímslið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 26 | 2.685 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 26 | 2.685 kr. |
Um bókina
Kári litli er hugrakkur strákur. Það er bara eitt sem hann er hræddur við. Klósettskrímslið! Svo þarf hann að pissa um miðja nótt …
Kári litli og klósettskrímslið er fyrsta bók Þórgunnar Oddsdóttur. Þetta er bráðsniðug saga fyrir krakka á aldrinum tveggja til sex ára, sérstaklega þá sem þurfa stundum að fara á klósettið.
****
„Sagan er bráðskemmtileg … Teikningar Þórgunnar eru mjög viðeigandi og minna stundum á bækurnar um Einar Áskel. Þetta er fyrsta barnabók Þórgunnar og tekst henni mjög vel til.“
Ingveldur Geirsdóttir / Morgunblaðið
„Myndirnar í bókinni eru mjög flottar … Mér finnst fyndið að Kári hugsi að það sé engin kúkalykt af klósettskrímsli þó að það sé í klósettinu. … Ég held að bókin sé fyrir 3-6 ára krakka. Þetta er skemmtileg bók.“
Guðjón Valur Ólafsson, 8 ára / Morgunblaðinu
****
„Þórgunnur setur saman hversdagslega og æsilega sögu sem er í senn spennandi og fyndin. … Þetta er vel heppnað byrjendaverk og víkur Þórgunnur vonandi ekki af þessari braut.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið
„Teikningar höfundar eru bráðskemmtilegar, klósettskrýmslið er grænt margarma fyrirbæri með gisnar tennur og stór augu og rekur fálmarana ógnandi upp úr klósettskálum.“
Úlfhildur Dagsdóttir /