Forlagið áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilvikum eingöngu þar. Með sama hætti gilda tilboð í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð ekki alltaf í vefverslun. Kaup á vörum sem eru afhentar rafrænt, með hlekk eða sem streymi, eru endanleg um leið og greitt hefur verið fyrir vöruna. Slíkar vörur fást ekki endurgreiddar.
Greiðslumáti
Í vefverslun Forlagsins er hægt að greiða fyrir flestar vörur með kreditkorti, debetkorti, póstkröfu, millifærslu eða Netgíró. Hljóðbækur fyrir appið og rafbækur er hins vegar aðeins hægt að greiða fyrir með kreditkorti, debetkorti eða Netgíró. Greiðandi og viðtakandi þarf ekki að vera sá sami. Ef greiðandi velur millifærslu eru greiðsluupplýsingar sendar í tölvupósti. Pöntunin er ekki afgreidd fyrr en staðfesting á millifærslu hefur borist frá kaupanda á tölvupóstfangið forlagid@forlagid.is.
Skilað og skipt
Í flestum tilvikum er hægt að skipta bókum hjá okkur í verslun Forlagsins á Fiskislóð 39 að því tilskildu að bækurnar séu til sölu í búðinni, séu enn óopnaðar og í plasti ef þær eru seldar þannig. Söluaðili áskilur sér þó rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig. Vörum sem eru afhentar rafrænt, rafbókum og hljóðbókum fyrir appið, fæst ekki skilað né skipt.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Sendingar
Innanlands sendum við vöruna að öllu jöfnu með pósti innan þriggja virkra daga. Burðargjaldið fylgir verðskrá Póstsins og fer eftir fjölda bóka í sendingu.
Við sendum líka pantanir til útlanda en þá lengist afhendingartíminn eftir því til hvaða lands sendingin á að fara. Pantanir til útlanda eru sendar með DHL (nema til Rússlands).
Forlagið tekur ekki ábyrgð á tollum og gjöldum sem leggjast á sendingar til útlanda í viðtökulandinu. Öll aukaleg tolla-, skatta-, og innflutningsgjöld eða hugsanlegar aukagreiðslur eru á ábyrgð kaupanda.
Rafbækur eru afgreiddar strax að lokinni pöntun og greiðslu. Kaupandinn fær sendan tölvupóst með hlekk sem vísar á vöruna. Ef hlekkurinn berst ekki strax gæti hann hafa lent í ruslhólfinu (junkmail/spam) í póstforritinu.
Hljóðbækur eru seldar á geisladiskum (CD eða MP3) eða á rafrænu formi. Hljóðbækur á geisladiskum eru sendar með pósti eða afgreiddar úr verslun en hljóðbækur fyrir smáforritið eða appið eru afhentar rafrænt og fær kaupandi aðgang að vörunni strax á sínu notendasvæði á vefnum eða í smáforritinu Forlagið - hljóðbók.
Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Forlagið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun Forlagsins og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Rafbækur og stafrænar vörur
Rafbækur sem seldar eru á Forlagsvefnum eru aðeins ætlaðar til einkanota. Skráin sem kaupendur fá er merkt viðkomandi með stafrænni vatnsmerkingu og þar með rekjanleg til kaupanda. Dreifing á efni hennar er með öllu óheimil. Vatnsmerkingin hefur ekki áhrif á skrána, notkun hennar né útlit bókarinnar. Öll afritun bókarinnar er bönnuð og eigandi skrárinnar ábyrg/ur fyrir því að hún dreifist ekki til annarra. Skráin er ekki ætluð til dreifingar, láns eða endursölu.
Kaupandi samþykkir að reyna ekki, eða hvetja aðra til, að sniðganga eða breyta þeim öryggisráðstöfunum er skránni fylgja. Brjóti kaupandi gegn þessum skilmálum getur það leitt til ákæru vegna brota á höfundalögum nr. 73/1972. Ekki er hægt að skila rafbók ef búið er að hlaða niður rafrænu eintaki hennar. Niðurhalshlekkurinn sem kaupandi fær er virkur í sjö daga, að þeim tíma liðnum er hann óvirkur og viðskiptum með þá tilteknu vöru lokið.
Ef einhver galli kemur upp í rafbókar-hlekknum, ef hann virkar ekki eða ef viðskiptavini tekst ekki að virkja hann innan viku, þarf að láta skrifstofu Forlagsins vita innan þriggja mánaða frá kaupum. Ef tilkynning berst síðar er ekki hægt að senda nýjan hlekk á viðskiptavin.
Hljóðbækur fyrir appið
Hljóðbækur sem hægt er að hlusta á í appi eða vafra eru seldar á vef Forlagsins. Í appinu er bæði hægt að hlusta á bækurnar í streymi og hlaða þeim niður svo hægt sé að hlusta á þær þegar nettenging er ekki til staðar. Á meðan þú hlustar í streymi er nauðsynlegt að vera tengd/ur netinu en ef hljóðbók er hlaðið niður má hlusta á hana hvar sem er, óháð nettengingu. Kaupendur hljóðbóka fyrir appið þurfa að vera skráðir notendur á Forlagsvefnum því notendanafn þeirra og lykilorð veita aðgang að hljóðbókum sem hafa verið keyptar í appi eða vafra. Hljóðbækurnar eru virkar í 5 ár frá kaupum. Ekki er hægt að skila eða skipta hljóðbók fyrir appið eftir að hún hefur verið keypt. Sjá nánar um hljóðbækur fyrir appið hér.
Bókaklúbbar
Forlagið heldur úti þremur bókaklúbbum og gefur einnig út Tímarit Máls og menningar. Áskrifendur í bókaklúbbum fá sendar heim bækur fjórum til sex sinnum á ári. Við fögnum nýjum áskrifendum og veitum þeim 50% afslátt af fyrstu bókasendingunni sinni. Klúbbfélagar geta skipt kiljum hjá okkur út fyrir aðrar kiljur frá Forlaginu, innan tveggja mánaða frá útsendingu – bækurnar verða þó að vera í söluhæfu ástandi.
Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskipta eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Hér má finna persónuverndarstefnu Forlagsins.