
Langar þig að gefa út bók? Nýjar raddir er samkeppni Forlagsins þar sem leitað er að nýjum röddum í íslenskum bókmenntum.
Hverjir geta tekið þátt?
Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem hafa ekki gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi.
Handritið skal vera á íslensku og ætlað fullorðnum lesendum. Það getur verið einn samfelldur texti eða safn styttri texta og lengdin miðast við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð). Leyfilegt er að senda inn handrit oftar en einu sinni í keppnina hafi það ekki hlotið verðlaunin.
Hvernig á að senda inn?
Auglýst er eftir handritum árlega og skiladagur oftast í síðla hausts.
Skiladagur fyrir Nýjar raddir 2027 er 2. nóvember 2026.
Handrit eru send inn undir nafni höfundar ásamt stuttri kynningu á þér og yfirliti yfir fyrri ritstörf.
Netfang: [email protected]
Verðlaun og útgáfa
Forlagið gefur út vinningshandritið í maí árið eftir keppni. Útgáfa er í kilju, rafbók og hljóðbók. Tilkynnt er um sigurvegara opinberlega á útgáfudegi en þátttakendur fá allir svar frá dómnefnd í kringum áramótin.
Allt að þrjú handrit geta hlotið verðlaun, þó oftast sé aðeins eitt valið.
Um Nýjar raddir
Samkeppnin var fyrst haldin árið 2017 í tilefni af tíu ára afmæli Forlagsins og komu fyrstu bækurnar út í maí 2018. Frá upphafi hefur markmiðið verið að opna dyr fyrir nýja höfunda og gefa þeim tækifæri til útgáfu.
Dómnefnd
Í dómnefnd sitja:
- Silja Aðalsteinsdóttir – rithöfundur og ritstjóri (2017)
- Atli Bollason – bókmenntafræðingur (2019)
- Elín Edda Pálsdóttir – verkefnastjóri útgáfu hjá Forlaginu (2024)
Sigurvegarar síðustu ára
- Harðindi – Vilhjálmur Pétursson (2026)
- Hefnd Diddu Morthens – Sigríður Pétursdóttir (2025)
- Eyja – Ragnhildur Þrastardóttir (2024)
- Hinum megin við spegilinn – Kári S. Kárason (2023)
- Getnaður – Heiða Vigdís Sigfúsdóttir (2022)
- Í miðju mannhafi – Einar Lövdahl (2021)
- Að telja upp í milljón – Anna Hafþórsdóttir 2021)
- Sjálfstýring – Guðrún Brjánsdóttir (2020)
- Strá – Birnir Jón Sigurðsson (2019)
- Undir yfirborðinu – Tanja Rasmussen (2018)
- Tinder match – Hörður Andri Steingrímsson (2018)
- Allavega – Erna Agnes Sigurgeirsdóttir (2018)







