Ástin lifir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 264 | 2.790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 264 | 2.790 kr. |
Um bókina
„Ekki leyndi sér hver átti röddina. Hvert einasta orð skilaði sér yfir mýrina í lognkyrru sumarkvöldinu. Það var gaman að mjólka blessaðar kýrnar sem gerðu mér þetta indæla ævintýri og söngurinn bergmálaði í hjartanu. Sannarlega er lífið dásamlegt”.
Margréti Kristjánsdóttur hefði síst grunað að hún ætti eftir að verða átta barna móðir í Skagafirðinum og sem hálfáttræð tæki stökkið til Danmerkur og gerast rithöfundur!
Í Ástin lifir skrifar Margrét styttri og lengri endurminningar í lifandi og persónulegum stíl. Sögur frá barnæskunni í Flóanum þar sem puðrandi flugur, jarðafarir og karamellur verða að litlum ævintýrum – sumum sorglegum. Hjartnæmar frásagnir af ástinni sem spíraði í Flóamoldinni og átti eftir að fylgja henni yfir fjöll, haf og mörk þessa heims og hins.
Bókina skreyta ótal myndir frá æskuslóðunum í Villingaholtshreppnum, vertíðarárunum í Ólafsvík og Grindavík. Álafossi, Biskupstungunum, Skagafirði, ástarævintýrum og fjölskyldu Margrétar frá Villingaholti.