Bókahúsið - Hlaðvarp Forlagsins

Bókahúsið er frumlegt og skemmtilegt hlaðvarp í umsjón Sverris Norland. Þar ræðir Sverrir ekki einungis við rithöfunda um nýjustu verk þeirra heldur spjallar einnig við hönnuði, bóksala, markaðsfólk, ritstjóra, sérfræðinga í hljóðbókargerð… Það krefst nefnilega samvinnu ótal handa að koma vönduðum bókum í til lesenda.

Hér er hægt að hlusta á alla þættina sem hafa verið birtir. Einnig er hægt að finna þættina á Spotify, Apple Podcasts og Podbean.

 

Fyrsti þáttur

Halldór Guðmundsson, sem segir okkur frá bók sinni Sagnalandinu, ríkulega myndskreyttri hringferð um merka bókmenntastaði á Íslandi, og Fríða Ísberg og Ingólfur Eiríksson, sem voru bæði að senda frá sér fyrstu skáldsögur sínar, Merkingu og Stóru bókina um sjálfsvorkunn. Þau líta í heimsókn ásamt ritstjóra sínum, Sigþrúði Gunnarsdóttur

 

Annar þáttur

Gestir í öðrum þætti Bókahússins eru Emilía Erla Ragnarsdóttir, bókahönnuður hjá Forlaginu; Rán Flygenring, teiknari og rithöfundur, og Gunnar Helgason, rithöfundur og leikari, en þau voru að senda frá sér tvær bækur, Bannað að eyðileggja og Drottningin sem kunni allt nema…; loks settist Einar Kárason með Sverri út í bakgarð við Bókahúsið og ræddi við hann um nýjustu skáldsögu sína, Þung ský.

 

Þriðji þáttur

Gestir Sverris Norland í þriðja þætti eru Sigrún Pálsdóttir, með skáldsöguna Dyngju, og Haukur Ingvarsson, með ljóðabókina Menn sem elska menn; í heimsókn kom einnig Anna Hafþórsdóttir, sem sló í gegn með skáldsögunni Að telja upp í milljón; loks litu til Sverris glæpadrottningarnar Lilja Sigurðardóttir, með bókina Náhvít jörð, og Jónína Leósdóttir, með bókina Launsátur.

 

Fjórði þáttur

Gestir Sverris í fjórða þætti eru Hildur Knútsdóttir, sem hræddi úr Sverri líftóruna með nýrri hrollvekju sinni, Myrkrið á milli stjarnanna; Sindri Freyr Steinsson, sem er sérlegur hljóðbókari Forlagsins og ræddi af áhuga og þekkingu um hljóðbækur; loks leit inn í Bókahúsið Snæbjörn Arngrímsson, sem er margreyndur útgefandi og svolítið þjakaður rithöfundur sjálfur, að eigin sögn, en hann var að botna barnabókaþríleik sinn með hinni leikglöðu og skemmtilegu Handbók gullgrafarans.

 

Fimmti þáttur

Gestir í fimmta þætti eru Eiríkur Bergmann, sem ræddi nýja bók sína Þjóðarávarpið; Linda Ólafsdóttir teiknari og Margrét Tryggvadóttir rithöfundur en þær sendu nýlega frá sér hið fallega samvinnuverkefni Reykjavík barnanna auk þess sem Margrét gaf fyrr á árinu út verðlaunabókina Sterk; loks ræddi Elín Edda Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Forlaginu, við Sverri um þau fjölmörgu horn sem hún hefur í að líta á kontórnum, m.a. um þau sjónarmið sem ráða för þegar velja á erlendar bækur til útgáfu.

 

Sjötti þáttur

Gestir Sverris í sjötta þætti eru Eiríkur Örn Norðdahl sem var að gefa út stórsnjalla skáldsögu sem nefnist Einlægur Önd; ljóðskáldin mælsku Eydís Blöndal og Þórdís Helgadóttir sem sendu á dögunum frá sér ljóðabækurnar Ég brotna 100% niður (Eydís) og Tanntaka (Þórdís); og loks hinn andríki Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, en hann gaf nýlega út léttlestrarbókina Sólkerfið og ferðaðist af því tilefni vítt og breitt um víðáttur alheimsins með Sverri.

INNskráning

Nýskráning