Kristín Ómarsdóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2024 í flokki skáldverka fyrir skáldsöguna Móðurást: Draumþing.
„Móðurást: Draumþing, skálduð ævisaga langömmu Kristínar, er fallega stíluð saga liðinna kynslóða á ofanverðri nítjándu öld. Framsetningin er brotakennd og ljóðræn og sýnir nýstárlega nálgun við ritun sögulegrar skáldsögu. Höfundi tekst listilega að skapa sögusvið sem er í senn framandi og kunnuglegt, einangrað og opið og veita innsýn í brothætt sálarlíf unglingsstúlku sem stendur á þröskuldi fullorðinsára og nýrra kennda, bundin af öllum þeim væntingum og takmörkunum sem samfélag hennar býr henni. Jónsmessunóttin, sem rammar frásögnina inn, leggur yfir hana blæ töfra og annarleika sem samræmist einkar vel hálfsögðum sögum og því sem liggur á milli lína,” segir í umsögn dómnefndar.
Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis hlaut Guðjón Friðriksson verðlaunin fyrir bókina Börn í Reykjavík.
„Börn í Reykjavík er yfirgripsmikið og fróðlegt verk um sögu barna í höfuðborginni allt frá þéttbýlismyndun til dagsins í dag. Stíllinn er leikandi léttur og skrifað er af nærfærni og næmni um málefni barna og fjölskyldna, aðbúnað þeirra og umhverfi og textinn dýpkaður með persónulegum sögum. Höfundur dregur einnig fram daglegt líf barna á tímabilinu – leikina, skemmtanirnar, skólamál og skyldurnar – og tengir þetta við þróun og breytingar í borgarsamfélaginu sem var að mótast. Sá fjöldi mynda sem prýðir bókina eykur heimildargildi hennar til muna og með þeim og lifandi frásagnarstílnum tekst Guðjóni að vekja söguna til lífs og draga upp skýra mynd af þróun samfélagsins og áhrifum hennar á börnin. Börn í Reykjavík er tímamótaverk sem er líklegt til að ná til breiðs lesendahóps og auka skilning á stöðu og veruleika barna í nútíð og þátíð,” segir í umsögn dómnefndar.
Forlagið óskar Guðjóni og Kristínu hjartanlega til hamingju með verðlaunin!