Það var stuð og stemning í bókabúð Forlagsins á Granda fimmtudaginn 15. maí þegar Sigríður Pétursdóttir bauð til útgáfuteitis í tilefni að útgáfu bókarinnar Hefnd Diddu Morthens. Hófið var um leið verðlaunaafhending, því Sigríður er sigurvegari Nýrra radda 2025. Að því tilefni hélt Atli Bollason tölu fyrir hönd dómnefndar og sigurvegari Nýrra radda 2024, Ragnhildur Þrastardóttir, veitti Sigríði viðurkenningu. Í kjölfarið sagði Sigríður frá tilurð bókarinnar og las upp fyrir áheyrendur.
Hefnd Diddu Morthens er sprenghlægileg saga um hefnd, gervimenni og gamlar sakir.
Við óskum Sigríði innilega til hamingju!