Skilafrestur í Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin rann út 15. október síðastliðinn og reyndist nýtt met hafa verið slegið í þátttöku því rúmlega fimmtíu handrit bárust í keppnina að þessu sinni! Nú hefur dómnefnd komist að niðurstöðu og búið er að hafa samband við sigurvegarann/-ana. Verðlaunabókin kemur út haustið 2026 og við hlökkum gríðarlega til að svipta hulunni af henni!
Nýlega hlaut verðlaunabók ársins 2025, Ég bý í risalandi eftir Birnu Daníelsdóttur, svo tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Við óskum Birnu innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu!
Næsti skilafrestur í Sólfaxa verður auglýstur vorið 2026 – fylgist með!