Tvær bækur frá Forlaginu hlutu verðlaun á Íslensku hljóðbókaverðlaununum Storytel Awards sem afhent voru í gær.
Hildur hlaut verðlaun í flokki glæpa- og spennusagna. Höfundur er Satu Rämö, lesari Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og þýðandi Erla Elíasdóttir Völudóttir.
Mennska hlaut verðlaun í flokki óskáldaðs efnis. Höfundur og lesari bókarinnar er Bjarni Snæbjörnsson.
Að auki átti Forlagið nokkrar bækur tilnefndar til verðlauna: Stella segir bless eftir Gunnar Helgason, Hittu mig í Hellisgerði eftir Ásu Marin, Nóttin sem öllu breytti: snjóflóðið á Flateyri eftir Helgu Guðrúnu Johnsen og Sóleyju Eiríksdóttur og Hefnd Diddu Morthens eftir Sigríði Pétursdóttur.
Forlagið er afar stolt af þessum árangri og óskar öllum sem komu að bókunum innilega til hamingju.








