Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson, með myndum eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur, hefur verið tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að bókin „tali skýrt inn í umræður á hverjum tíma um skólakerfið, völd og gjá í samskiptum kynslóðanna“ og að höfundi takist „með húmor og hlýju að sýna hvernig samtal og gagnkvæmur skilningur geta brúað það bil“.
Við óskum Ævari Þór Benediktssyni, rithöfundi, og Elínu Elísabetu Einarsdóttur, myndhöfundi, innilega til hamingju með tilnefninguna.
Tilnefningin er dýrmæt viðurkenning á öflugri barnabókmenntagerð og því mikilvæga samtali sem bókin kveikir.
Bókin sló eftirminnilega í gegn á Íslandi í síðasta jólabókaflóði og hlaut frábærar viðtökur og dóma hér heima.


