Ævar Þór Benediktsson, Birna Daníelsdóttir og Jón St. Kristjánsson hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Höfða.
Ævar Þór hlaut verðlaun fyrir Skólastjórann í flokki frumsaminna verka, Birna Daníelsdóttir fyrir Ég bý í risalandi í flokki myndlýsinga og Jón St. Kristjánsson fyrir þýðingu sína á Undrarútunni.
Við óskum þeim innilega til hamingju með verðlaunin.

