Staðfestur skilafrestur fyrir Sólfaxa

Lumar þú á hugmynd að myndríkri bók? Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsir eftir óútgefnum handritum að myndríkum bókum til að keppa um Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin. Sigurvegarinn hlýtur 1.500.000 krónur í verðlaun auk þess sem handritið kemur út á bók haustið 2027. Allar nánari upplýsingar og reglur keppninnar má nálgast með því að smella HÉR.

Skilafrestur er til og með 1. október 2026.

Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á bókina sem sigraði síðustu keppni en hulunni verður svipt af henni snemma næsta haust.

Fylgist með!

INNskráning

Nýskráning