Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson var valin bók ársins á verðlaunahátíðinni Sögur 2026, þar sem börn um allt land kusu sitt uppáhalds menningarefni síðasta árs. Auk þess hlaut bókin verðlaun fyrir myndlýsingu ársins, en myndlýsingar bókarinnar eru eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur.
Sögur eru verðlaun barnanna sjálfra og endurspegla það efni sem hefur höfðað mest til ungra lesenda, áhorfenda og hlustenda á árinu. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá Skólastjórann hljóta þessar viðurkenningar.
Við óskum Ævari Þór Benediktssyni og Elínu Elísabetu Einarsdóttur innilega til hamingju með verðlaunin. Þar sem Elín gat ekki verið viðstödd tóku systir hennar og frænka við verðlaununum fyrir hennar hönd.


