ove hefur starfað hjá sama forlaginu í sautján ár og unnið sig upp í stöðu útgáfustjóra. Þegar nýir eigendur taka óvænt við fyrirtækinu breytist allt. Í hita augnabliksins segir hún upp og skyndilega er tilveran komin úr skorðum. Sonurinn er fluttur að heiman, sorgin eftir andlát móður hennar er enn sár og í fyrsta sinn í langan tíma veit Tove ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún leitar skjóls í gömlu húsi móður sinnar í í sænska skerjagarðinum við Arkösund, þar sem hún reynir að finna aftur fótfestu. Á háalofti hússins bíður hennar óvænt uppgötvun: gömul dagbók sem tilheyrði Märtu frænku hennar. Dagbókarfærslurnar leiða Tove aftur í tímann, til Ameríku í upphafi síðustu aldar, þar sem hörmulegur bruni markaði upphaf dularfullrar atburðarásar. Eftir því sem Tove kemst nær sannleikanum um örlög Märtu breytist sýn hennar á eigið líf. Hrífandi skáldsaga um fjölskylduleyndarmál, missi og von og hugrekkið sem þarf til að þora að velja nýja leið.
Urður Snædal íslenskaði.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar