Vilhjálmur Pétursson fagnaði sigri í Nýjum röddum

Það var glatt á hjalla þegar vinir og velunnarar komu saman til að fagna sigri Vilhjálms Péturssonar í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum. Sigurverk hans, Harðindi, er jafnframt fyrsta bók hans. Smartland fjallaði um fögnuðinn og birti myndir frá honum.

Í Harðindum leggur Steinn ríðandi af stað úr bænum, staðráðinn í að snúa aldrei aftur. Lífið í landinu hefur farið snarversnandi og hann misst trúna á framtíðina. Ferðalag hans og merarinnar reynist erfitt, en þegar hann er nærri því að gefast upp sjást loks blikur á lofti.

Vilhjálmur útskrifaðist úr ritlist við Háskóla Íslands og hefur síðan starfað við þýðingar. Harðindi komu út hjá Forlaginu árið 2026 og fást bæði sem kilja og rafbók.

Hér má lesa meira um verðlaunabókina Harðindi.

INNskráning

Nýskráning