Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tímanna blik
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 49 | 4.090 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 49 | 4.090 kr. |
Um bókina
Ljóðin í Tímanna blik eru samin á undanförnum árum og fjalla um tímablikið, þögnina, sýndarverurnar og hin margvíslegu tilverustig.
Tónlist byggð á ljóðum í bókinni kemur út samhliða og ber nafnið Tímablik – píanóljóð en tónlistin þar endurspeglar ljóðin í bókinni bæði í hljómum, áferð og tónum – til hljómrænnar túlkunar á efni og innihaldi ljóðanna.
Kjartan Ólafsson gaf út sína fyrstu ljóðabók, Líf – Uppistand augnabliksins, árið 2024 en hann hefur auk þess samið ljóð við tónlist af ýmsum toga.
Kjartan er tónskáld og hefur samið vel á þriðja hundrað tónverka af ólíkum gerðum; sinfóníur, óperur, kammerverk, kórverk, dansverk, raftónverk og dægurlög og hafa mörg verka hans verið byggð á bókmenntalegum grunni.













Umsagnir
Engar umsagnir komnar