Vísur Svantes – Saga í söngvum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 77 4.490 kr.
✓
spinner

Vísur Svantes – Saga í söngvum

4.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 77 4.490 kr.
✓
spinner

Um bókina

Þessi stórskemmtilega bók eftir danska skáldið, rithöfundinn og tónlistarmanninn Benny Andersen fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Verkið kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku, bæði í bókarformi og á hljómplötu, á aldarafmæli söguhetjunnar.

Með gamansömum og sérstæðum hætti segir höfundurinn frá kynnum sínum af skáldinu óhamingjusama sem kynnti sig gjarnan þannig:

Svante Svendsen, fæddur Svensson, varð viðskila við skánska foreldra mína á Malmö-ferjunni í ágúst 1935 og hef síðan orðið að sjá um mig sjálfur með aðstoð annarra.

Vísur Svantes slógu í gegn í Danmörku, ekki síst vegna þess að í kjölfar bókarinnar kom út hljómplata með söngvunum sem Povl Dissing túlkaði af stakri snilld við undirleik Benny Andersen og hljómsveitar.

Samnefnd hljómplata með túlkun þýðandans og tónlistarmannsins Aðalsteins Ásbergs, auk Gunnars Gunnarssonar á píanó og Birgis Steins Theodórssonar á kontrabassa kemur út samhliða bókinni.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Vísur Svantes – Saga í söngvum”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning