Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta.
ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru 277 aðilar frá 80 löndum tilnefndir og eru Arndís og Sigrún fulltrúar Íslands.
Báðar skipa þær mikilvægan sess í íslenskum barnabókmenntum og hafa glatt unga lesendur með verkum sínum. Við hjá Forlaginu erum stolt af samstarfinu við þær og fögnum því að framlag þeirra njóti athygli á alþjóðavettvangi.
Við óskum Arndísi og Sigrúnu innilega til hamingju með tilnefningarnar og höldum þétt með þeim!
