Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Í sól og skugga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 3.100 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 3.100 kr. |
Um bókina
Ballerína og bjútíkvín, leikkona og lífskúnstner, blaðamaður og ritstjóri, kennari, skólameistari og sjónvarpskona – Bryndís Schram er þetta allt og meira til. Sem eiginkona eins umdeildasta stjórnmálamanns þjóðarinnar á seinni árum, Jóns Baldvins Hannibalssonar, hefur hún jafnframt staðið í hringiðu stjórnmálanna heima og erlendis og flakkað heimshorna á milli.
Í sól og skugga eru endurminningar Bryndísar Schram, þar sem hún dregur upp litríkar mannlífsmyndir frá Bandaríkjunum, Kanada, Suður-Ameríku, Finnlandi, Eystrasaltslöndum, Suður-Evrópu og ekki síst frá öðrum heimkynnum sínum, Andalúsíu. Ævintýraleg tilvera, heitar tilfinningar og iðandi mannlíf – allt þetta ber hún hér fram á blómum skrýddu veisluborði minninganna.