Ríki ljóssins 8 – Skelfing
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 1.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 1.890 kr. |
Um bókina
8. bindi í hinum magnaða flokki Margit Sandemo, RÍKI LJÓSSINS. Þar tengjast sögurnar um ÍSFÓLKIÐ og GALDRAMEISTARANN, í stórkostlegum heimi handan tíma og rúms.
Þegar búið var að taka nornina Gríseldu úr umferð í Ríki Ljóssins fór leiðangur út í Myrkraríkið til að bjarga stóru hjartardýrunum sem þar höfðust við. Svo vildi til að í þessa hættuför fóru margir sem áttu við vandræði að stríða í ástamálum sínum.
Úti í Myrkraríkinu biðu illar verur sem enginn hafði áður heyrt getið. Jafnvel magnaðir meðhjálparar Móra og Ísfólksins áttu fullt í fangi með þær…
MARGIT SANDEMO er fædd 23. apríl 1924 i Östre Toten i Noregi. Margit skrifar á sænsku og gaf út sína fyrstu bók árið 1964. Í allt hefur Margit skrifað meira en 170 bækur og er mest seldi rithöfundur Norðurlandanna með meira en 39 milljónir seldra bóka. Þar af hefur Sagan um Ísfólkið selst í um 25 milljónum eintaka um allan heim.