Næturgalinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 560 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 560 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Um bókina
Í ást komumst við að því hver við viljum vera, í stríði komumst við að því hver við erum.
Líf frönsku systranna Vianne og Isabelle hefur ekki alltaf verið dans á rósum og þegar nasistar hertaka landið fer tilveran á hvolf. Enda þótt ógnin lúri í hverju skúmaskoti láta þær ekki bugast og finna hvor um sig leið til að takast á við napran stríðsveruleikann. Öllu – jafnvel lífinu sjálfu – skal fórnað fyrir fjölskyldu, vini og þá sem eru í nauðum staddir.
Næturgalinn er mögnuð söguleg skáldsaga um ástir, harm og hugrekki kvenna á stríðstímum sem hefur selst í meira en 1,5 milljónum eintaka. Hún grípur lesandann föstum tökum; hann hverfur inn í fortíð sem aldrei má gleymast og upplifir atburðarás sem sýnir hvers mannleg reisn er megnug gagnvart illskunni.
Ólöf Pétursdóttir þýddi.
5 umsagnir um Næturgalinn
Árni Þór –
„Sagan er afar vel skrifuð, áhrifamikil, grípandi og spennandi og hefur hlotið mjög góðar viðtökur um allan heim. Vikan mælir heilshugar með þessari mannbætandi bók.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Árni Þór –
★ ★ ★ ★
„Þrátt fyrir gríðarlega dramatískt efni er Næturgalinn allt annað en harmsaga. Bókin er full af hlýju og hún er líka ástar- og spennusaga. Hún er sérlega vel uppbyggð, engir hnökrar eru á söguþræðinum, persónurnar eru dregnar skörpum dráttum og auðvelt að setja sig í spor þeirra og skilja hvers vegna þær gera nákvæmlega það sem þær gera. Svo er þýðing Ólafar Pétursdóttur líka afbragðsvel gerð.“
Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Metsölubókahöfundurinn Kristin Hannah nær sannarlega flugi í þessari grípandi sögu.“
Publishers Weekly
Árni Þór –
Goodreads.com
Árni Þór –
Amazon.com