Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir myndaríkar barnabækur. Einu sinni á ári er auglýst eftir óútgefnum handritum til að keppa um verðlaunin. Þriggja manna dómnefnd velur sigurhandritið og Forlagið gefur það út á bók. Verðlaunafé er 1.500.000 auk höfundarlauna.

Næsti skilafrestur er til og með 1. október 2026.

Reglur

Eingöngu er óskað eftir óútgefnum handritum að myndríkum bókum; allt frá myndabókum fyrir yngstu lesendurna að myndasögum fyrir unglinga. Gengið er út frá því að hlutfall og vægi mynda sé þannig að þær segi söguna til jafns við textann. Sé handritið unnið í samstarfi myndhöfundar og textahöfundar skiptist verðlaunafé jafnt á milli þeirra. Hluti verðlaunafjár er greiddur út þegar niðurstaða liggur fyrir og það sem eftir stendur um leið og bókin kemur út. Höfundarlaun eru greidd samkvæmt útgáfusamningi.

Síðustærð er frjáls og engin lengdarviðmið eru gefin en gengið er út frá því að sagan myndi sjálfstæða heild. Aldursviðmið eru sömuleiðis frjáls svo framarlega sem bókin hentar lesendum einhvers staðar á bilinu 0−18 ára. Ekki er heimilt að nýta gervigreind, hvorki við texta- né myndagerð.

Hvenær er skilafrestur?

Að vori er auglýst eftir handritum til að keppa um verðlaun næsta árs. Auglýsingin birtist á heimasíðu Forlagsins auk þess sem henni er deilt á fréttasíðu og samfélagsmiðlum útgáfunnar. Skilafrestur er tiltekinn í auglýsingunni en gera má ráð fyrir að hann verði að hausti sama ár.

Hverju á að skila inn?

Hægt er að skila keppnisgögnum inn á tvenns konar formi:

  1. Fullbúin saga er send inn á formi svokallaðra myndstiklna/sögutöflu (e. storyboard). Þar eru grófar skissur að öllum opnum bókarinnar og sá texti sem á að fylgja er skrifaður inn á eða við myndirnar, ýmist handskrifaður eða rafrænn. Með þessu fylgja a.m.k. tvær fullgerðar myndir.
  2. Fullbúin saga er send inn sem hefðbundið textaskjal. Á viðeigandi stöðum í textanum skal gera grein fyrir myndefninu, hvað hver og ein mynd sýni og jafnvel hvaða hughrif hún kveiki. Gæta þarf að því að lýsingarnar á myndunum séu skýrt aðgreindar frá meginmálinu, t.d. með letri eða lit. Með þessu fylgja a.m.k. tvær fullgerðar myndir ásamt ýtarlegum skissum að a.m.k. fjórðungi mynda.

Öllum keppnisgögnum er skilað inn á pdf-formi, hvort sem um texta eða myndir er að ræða. Senda má keppnisgögn inn í einu skjali eða sem nokkrar aðskildar skrár. Gæta þarf að því að heiti allra skráa feli í sér titil verksins. (Dæmi: Titill handritsins er Í sól og sumaryl, skrárnar gætu t.a.m. heitað ISolOgSumarylHeild.pdf eða I_sol_og_sumaryl_texti.pdf, I_sol_og_sumaryl_skissur.pdf og I_sol_og_sumaryl_myndir.pdf.)

Þar sem samkeppnin er nafnlaus er mikilvægt að nöfn höfunda komi hvergi fyrir í keppnisgögnum. Þess í stað senda höfundar inn sérstakt fylgiskjal þar sem titill verksins er tilgreindur ásamt netfangi/netföngum höfundar/höfunda. Geta skal netfanga allra sem teljast höfundar handritsins.

Til að tryggja nafnleynd tekur ritari dómnefndar við öllum gögnum, kemur keppnisgögnum áfram til dómnefndar en heldur upplýsingum um netföng höfunda eftir hjá sér. Farið verður með öll keppnisgögn sem trúnaðarmál.

Hvert á að senda gögnin?

Allt efni er sent inn rafrænt á netfangið [email protected]. Sé um þungar skrár að ræða er þátttakendum bent á að nýta sér WeTransfer eða sambærilegan hugbúnað sem finna má gjaldfrjálsan á netinu.

Hvernig gengur dómnefndarferlið fyrir sig?

Að skilafresti loknum tekur ritari dómnefndar öll keppnisgögn saman og kemur þeim til dómnefndar. Dómnefnd metur gæði mynda og texta og samspil þar á milli. Hún horfir auk þess til þess að handritið henti til útgáfu og falli að þörfum markhópsins hvað lengd og efnistök varðar. Gera má ráð fyrir að dómnefndarferlið taki um það bil tvo mánuði.

Þegar búið er að velja verðlaunahandritið fær dómnefnd afhentar upplýsingar um netfang/netföng höfundar/höfunda þess og hefur samband við hann/þá. Ritari dómnefndar sendir öðrum þátttakendum tölvupóst og lætur þá vita að niðurstaða liggi fyrir. Að þessu loknu verður þeim gögnum sem bárust í keppnina eytt.

Dómnefnd getur því miður ekki rökstutt hvers vegna tiltekið handrit varð ekki fyrir valinu eða komið með tillögur að úrbótum.

Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum handritum.

Hvað gerist svo?

Eftir að verðlaunahöfundi/-höfundum hefur verið tilkynnt um sigurinn fær myndhöfundur að lágmarki fjóra mánuði til að ljúka við myndefnið.

Bókin fer í gegnum hefðbundið ritstjórnarferli en athugið að í því geta bæði texti og myndir tekið breytingum. Umbrot og hönnun kápu eru unnin í samstarfi höfundar/höfunda og útgefanda. Verðlaunahandritið kemur út hjá Forlaginu að hausti undir merkjum Vöku-Helgafells og er nafn verðlaunahafans kunngjört um leið.

Nánari upplýsingar um verðlaunin veitir Guðrún Lára Pétursdóttir ritstjóri og formaður dómnefndar.

Um verðlaunin

Íslensku barnabókaverðlaunin voru stofnuð árið 1985 í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar og voru þau veitt í fyrsta sinn vorið 1986. Árið 2024 var fyrirkomulagi verðlaunanna breytt og eru þau nú eingöngu veitt fyrir myndríka bók. Um leið hlutu þau nýtt nafn, Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin. Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið. Í dómnefnd sitja þrír aðilar, Sumargjöf skipar einn og Forlagið tvo, þar af einn myndhöfund.

Verðlaunahafar frá upphafi:

Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin:

Ég bý í risalandi eftir Birnu Daníelsdóttur, 2025

Íslensku barnabókaverðlaunin:

Ljósberi eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson, 2021

Vampírur, vesen og annað tilfallandi eftir Rut Guðnadóttur, 2020

Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins eftir Snæbjörn Arngrímsson, 2019

Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn eftir Birki Blæ Ingólfsson, 2018

Er ekki allt í lagi með þig? eftir Elísu Jóhannsdóttur, 2017

Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck, 2016

Skuggasaga – Arftakinn eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, 2015

Ótrúleg ævintýri afa eftir Guðna Líndal Benediktsson, 2014

Hrafnsauga eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson, 2012

Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, 2011

Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, 2010

Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson, 2009

Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson, 2008

Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur, 2007

Háski og hundakjöt eftir Héðin Svarfdal Björnsson, 2006

Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, 2004

Biobörn eftir Yrsu Sigurðardóttur, 2003

Ferðin til Samiraka eftir Hörpu Jónsdóttur, 2002

Sjáumst aftur … eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, 2001

Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur, 2000

Heljarstökk afturábak eftir Guðmund Ólafsson, 1998

Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson, 1997

Grillaðir bananar eftir Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 1996

Eplasneplar eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur, 1995

Röndóttir spóar eftir Guðrúnu H. Eiríksdóttur, 1994

Brak og brestir eftir Elías Snæland Jónsson, 1993

Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, 1992

Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, 1991

Í pokahorninu eftir Karl Helgason, 1990

Álagadalurinn eftir Heiði Baldursdóttur, 1989

Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur, 1988

Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur, 1987

Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, 1986

Stjórn Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka:

Guðrún Lára Pétursdóttir (fulltrúi Forlagsins)

Sigþrúður Gunnarsdóttir (fulltrúi Forlagsins)

Sölvi Sveinsson (fulltrúi Sumargjafar)

Kristín Ármannsdóttir, formaður stjórnar (fulltrúi fjölskyldu Ármanns Kr. Einarssonar)

Verkefnastjóri útgáfu hjá Forlaginu gegnir stöðu ritara dómnefndar.

Fjármálastjóri Forlagsins heldur utan um fjármál Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka og tekur saman tölur fyrir árlegan aðalfund.

Vinnureglur Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka – með hliðsjón af samkeppnisreglum Rithöfundasambands Íslands.

  1. Auglýsingar og kynningar

Í auglýsingum og kynningum á handritasamkeppni Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka skal skýrt tekið fram að um handrit að myndríkri bók fyrir börn sé að ræða, hvernig og hvenær handritum skal komið til skila og hvaða aðilar skipa dómnefnd. Þar skal einnig kveðið á um verðlaunafé og titil verðlaunanna: Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin. Ef áskilinn er réttur til að veita engin verðlaun skal það tekið sérstaklega fram. Einnig skal auglýsa það sérstaklega að innsendum keppnisgögnum verði eytt eftir að dómnefnd hefur lokið störfum. Forgangsréttur til útgáfu eða birtingar verðlaunaverka skal einnig tilgreindur.

  1. Meðferð keppnisgagna

Öll meðferð keppnisgagna sé hin vandaðasta og skrár með upplýsingum um netföng keppenda tryggilega geymd hjá ritara dómnefndar sem ekki kemur að dómnefndarstörfum. Aðeins skal opna það skjal sem tengist vinningshöfum. Eftir að tilkynnt hefur verið að sigurhandrit hafi verið valið verður þessum skrám eytt ásamt öðrum innsendum keppnisgögnum.

  1. Dómnefndir

Þriggja manna dómnefnd sér um að velja handritið sem er verðlaunað: Forlagið velur tvo nefndarmenn, þar af einn myndhöfund, en Barnavinafélagið Sumargjöf einn.

  1. Verðlaunafé, úrslit og afhending verðlauna

Verðlaunaféð er 1.500.000 krónur, höfundagreiðslur svo til viðbótar. Dómnefnd skal í samráði við þá sem að keppninni standa sjá til þess að kynning á úrslitum og verðlaunaveiting sé með viðeigandi hætti.

  1. Samningar um útgáfu eða birtingu

Formaður dómnefndar fylgi því jafnan eftir að gerðir séu samningar um útgáfu eða birtingu verðlaunaverka eigi síðar en sex vikum eftir að úrslit eru kunngerð höfundi.

     

INNskráning

Nýskráning