Skilmálar


Forlagið ehf.
Kt. 600201-2390
VSK nr. 70372


Afgreiðsla og afhending pantana
Pantanir úr vefverslun eru alla jafna teknar til næsta virka dag eftir að pöntun berst.

Í kaupferli velur viðskiptavinur á milli þess að fá pöntun senda með Íslandspósti eða Dropp. Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram og er sendingarkostnaður skv. gjaldskrá viðeigandi flutningsaðila. Einnig býðst viðskiptavinum að sækja pantanir í verslun okkar að Fiskislóð 39, sér að kostnaðarlausu.

Forlagið ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vöruhúsi Forlagsins og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Pantanir erlendis eru sendar með DHL. Forlagið tekur ekki ábyrgð á tollum og gjöldum sem leggjast á sendingar í viðtökulandinu. Öll aukaleg tolla-, skatta-, og innflutningsgjöld eða aðrar hugsanlegar aukagreiðslur eru alfarið á ábyrgð kaupanda. Fyrir nánari upplýsingar varðandi innflutningsgjöld hvetjum við þig til þess að leita upplýsinga hjá tollyfirvöldum í viðkomandi landi.


Verð
Verð í vefverslun eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Verð geta breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar. Ef mistök verða við verðskráningar á vörum í vefverslun, sem eru þess eðlis að kaupanda má vera ljóst að um augljós mistök sé að ræða, áskilur Forlagið sér rétt til að falla frá afgreiðslu á pöntun og endurgreiða viðskiptavin án tafar.

Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu þar. Með sama hætti gilda tilboð í verslun ekki alltaf í vefverslun.


Skattar og gjöld
Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti (VSK). Reikningar eru gefnir út með VSK.

Bækur, hljóðbækur (CD og streymi), rafbækur, tímarit og blöð bera 11% VSK. Aðrar vörur bera 24% VSK.


Greiðslumáti
Í vefverslun Forlagsins er boðið upp á greiðslu með debet- og kreditkortum. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Einnig er í boði að nýta greiðslulausn Netgíró eða greiða með millifærslu.

Ef greitt er með millifærslu fær viðskiptavinur greiðsluupplýsingar sendar í tölvupósti. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur farið gengið í gegn og staðfesting borist frá kaupanda á tölvupóstfangið [email protected]. Ef ekki er greitt innan 2ja daga telst pöntun ógild.




Skilað og skipt
1. Ef skila á vöru í Bókabúð Forlagsins skal strax hafa samband við starfsfólk í afgreiðslu.

2. Vöru fæst ekki skipt nema hún sé annað hvort með skiptimiða frá Bókabúð Forlagsins eða gegn framvísun kassakvittunar. Vara skal vera í söluhæfu ástandi, starfsfólki er annars heimilt að neita móttöku skilavöru og endurgreiðslu á vöru.

3. Gallaðri vöru fæst skipt fyrir nýtt eintak af sömu vöru ef hægt er að sýna fram á að hún hafi verið keypt í Bókabúð Forlagsins með annað hvort sölukvittun eða skiptimiða.

4. Séu vöruskil innan 14 daga frá dagsetningu kassakvittunar er varan endurgreidd að fullu samkvæmt söluverði kassakvittunarinnar. Full endurgreiðsla í reiðufé fæst einungis ef varan var greidd með reiðufé og henni skilað samdægurs.

5. Ef meira en 14 dagar eru liðnir frá vörukaupum þegar vöru er skilað, er gefin út inneignarnóta samkvæmt söluvirði vörunnar á kassakvittun.

6. Ef vöru er skilað einungis með skiptimiða er gefin út inneignarnóta samkvæmt gildandi söluverði. Inneignarnóta gildir í fjögur ár frá útgáfudegi hennar gegn framvísun frumrits. Ekki er hægt að reikningsfæra eða skuldajafna inneignarnótu.

7. Ef mismunur á verði vöru sem keypt er og áður útgefinnar inneignarnótu er meiri en 500 kr. er gefin út ný inneignarnóta fyrir eftirstöðvunum.

8. Sé óskað eftir skiptimiða á vörur keyptar á Bókamarkaði Forlagsins fá þær sérstaka bókamarkaðsmiða. Sé vörunum skilað er gefin út inneignarnóta samkvæmt útsöluverði síðasta bókamarkaðar.

9. Sé ekki unnt að framvísa sölukvittun við skil á vöru eða varan án skiptimiða frá Bókabúð Forlagsins er starfsfólki heimilt að taka á móti vörunni gegn inneignarnótu sé varan framleidd eða henni dreift af Forlaginu bókaútgáfu og þá samkvæmt útsöluverði síðasta bókamarkaðar.
10. Skil á vörum sem keyptar eru í gegnum viðskiptareikning eru kreditfærð á viðkomandi viðskiptareikning.

11. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

12. Félagar í Uglunni og Hrafninum geta skipt klúbbakilju og nýtt klúbbaverðið upp í bækur gefnar út undir merkjum Forlagsins, Máls og menningar, Vöku-Helgafells, JPV og Iðunnar. Slíkt þarf þó að gerast innan sex mánaða frá útsendingu og þurfa bækurnar að vera í söluhæfu ástandi.

13. Kaup á vörum sem eru afhentar rafrænt, með hlekk eða sem streymi eru endanleg um leið og greitt hefur verið fyrir vöruna. Slíkar vörur fást ekki endurgreiddar.


Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Persónuverndarstefnu Forlagsins má finna hér.


Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskipta eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.


Rafbækur
Rafbækur sem seldar eru á Forlagsvefnum eru aðeins ætlaðar til einkanota. Skráin sem kaupandi fær er merkt viðkomandi með stafrænni vatnsmerkingu og þar með rekjanleg til kaupanda.

Dreifing á efni hennar er með öllu óheimil. Vatnsmerkingin hefur ekki áhrif á skrána, notkun hennar né útlit bókarinnar. Öll afritun bókarinnar er bönnuð og er eigandi skrárinnar ábyrg/ur fyrir því að hún dreifist ekki til annarra. Skráin er ekki ætluð til dreifingar, láns eða endursölu. Kaupandi samþykkir að reyna ekki, eða hvetja aðra til, að sniðganga eða breyta þeim öryggisráðstöfunum er skránni fylgja. Brjóti kaupandi gegn þessum skilmálum getur það leitt til ákæru vegna brota á höfundalögum nr. 73/1972.

Rafbækur eru afgreiddar strax að lokinni pöntun og greiðslu. Kaupandinn fær sendan tölvupóst með hlekk sem vísar á vöruna. Ef hlekkurinn berst ekki strax gæti hann hafa lent í ruslhólfinu (junkmail/spam) í póstforritinu.

Ekki er hægt að skila rafbók ef búið er að smella á hlekkinn og þar með hlaða niður rafrænu eintaki hennar.


Hljóðbækur í appi
Hljóðbækur sem hægt er að hlusta á í appi eða vafra eru seldar á vef Forlagsins.

Í appinu er bæði hægt að hlusta á bækurnar í streymi og hlaða þeim niður svo hægt sé að hlusta á þær þegar nettenging er ekki til staðar. Á meðan þú hlustar í streymi er nauðsynlegt að vera tengd/ur netinu en ef hljóðbók er hlaðið niður má hlusta á hana hvar sem er, óháð nettengingu.

Hljóðbækur fyrir appið eru afhentar rafrænt og fær kaupandi aðgang að vörunni strax á sínu notendasvæði á vefnum eða í smáforritinu Forlagið – hljóðbók. Ekki er hægt að skila eða skipta hljóðbók fyrir appið eftir að hún hefur verið keypt. Hljóðbækurnar eru virkar í 5 ár frá kaupum.

Sjá nánar um hljóðbækur fyrir appið hér.


Áskriftarleiðir
Forlagið heldur úti tveimur bókaklúbbum, Ugluklúbbnum og Hrafninum. Klúbbfélagar fá sendar sex vandaðar bækur á ári, ýmist íslenskar eða þýddar. Nýir klúbbfélagar skuldbinda sig í þrjár sendingar. Til þess að skrá sig þarf einstaklingur að hafa náð 18 ára aldri.

Forlagið fagnar nýjum áskrifendum og veitir 50% afslátt af fyrstu bókasendingu Uglunnar. Klúbbfélagar geta skipt klúbbakilju og nýtt klúbbaverðið upp í aðrar bækur frá Forlaginu. Slíkt þarf að gerast innan sex mánaða frá útsendingu og þurfa bækurnar að vera í söluhæfu ástandi.


INNskráning

Nýskráning