Flekkuð
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 342 | 2.685 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 342 | 2.685 kr. |
Um bókina
Jamilet er ægifögur en ógæfusöm: fólkið í fæðingarþorpinu hennar í Mexíkó telur blóðrauða valbrána á líkama hennar sýna að hún sé djöflinum merkt. Eftir dauða móður sinnar flýr hún til Bandaríkjanna í von um betra líf og fær starf á geðveikrahæli þar sem henni er falið að annast aldraðan sérvitring. Hann á að baki ótrúlega sögu sem Jamilet hlustar heilluð á og sú braut sem þau feta saman leiðir þau, hvort á sinn hátt, að sannleikanum um eigið líf.
Flekkuð er mögnuð og grípandi skáldsaga um litríkar persónur, ást, vináttu og þor, draumóra og kaldan veruleika – sveipuð ómótstæðilegum suðuramerískum sagnatöfrum.
Cecilia Samartin er fædd á Kúbu 1961 en býr og starfar í Bandaríkjunum. Bækur hennar hafa komið út víða í Evrópu og njóta sívaxandi vinsælda. Flekkuð er fyrsta bók hennar sem kemur út á íslensku.
Nanna B. Þórsdóttir þýddi.