Rithöfundurinn Andri Snær Magnason, einn af höfundum Forlagsins, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán einstaklinga heiðursmerki orðunnar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 17. júní. Hin íslenska fálkaorða er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir.
Andri Snær hefur á löngum og farsælum ferli fjallað af einstakri sköpunargáfu um náttúruna, samfélagið og þær áskoranir sem framtíðin ber í skauti sér. Verk hans hafa náð til lesenda á öllum aldri, vakið athygli langt út fyrir landsteinana og stuðlað að mikilvægu samtali um loftslagsmál og ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum.
Andri Snær sagði það sannan heiður að taka við riddarakrossinum og þakkaði vinum, fjölskyldu og samstarfsfólki. Vísaði hann jafnframt til orða forseta Íslands um að á bak við hvern orðuhafa stæði heilt samfélag.
Við hjá Forlaginu óskum Andra Snæ innilega til hamingju með þennan verðskuldaða heiður.

