Lærum að nema

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2004 3.590 kr.
spinner

Lærum að nema

3.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2004 3.590 kr.
spinner

Um bókina

Lærum að nema er námskerfi fyrir fólk á öllum aldri, innan sem utan hins hefðbundna skólakerfis.

Í bókinni er tekið mið af þeim þáttum sem ráða úrslitum um árangur í námi. Hornsteinninn er lestrarlíkan sem felur í sér markvisst ferli við nám og hvers konar þekkingarleit, ásamt því að leiðbeint er um hugarfar, einbeitingu og ákjósanlega lifnaðarhætti. Saman við lestrarlíkanið fléttast aðrir þættir námskerfisins; glósugerð, tímastjórnun, streitu- og kvíðastjórnun og próftaka – svo úr verður ein heild.

Höfundur bókarinnar, Ásta Kristrún Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi, byggir hér á áratuga reynslu af ráðgjöf og rannsóknum á þessu sviði. Hjá fræðslu- og ráðgjafarstofunni Nema hefur verið þróaður vefur þar sem unnið er samkvæmt námskerfinu. Bókinni fylgir veflykill sem veitir aðgang að þessu byltingarkennda hjálpartæki námsmanna í eina önn. .

Nútíminn krefst þess að fólk bæti sífellt við þekkingu sína – Lærum að nema vísar veginn að árangri.

Tengdar bækur

Það sem dvelur í þögninni
1.999 kr.2.590 kr.

INNskráning

Nýskráning