Brian Pilkington hlýtur fálkaorðu

Á nýársdag sæmdi forseti Íslands – venju samkvæmt – nokkra þá sem þykja hafa auðgað land og þjóð heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeirra á meðal var listamaðurinn Brian Pilkington, sem hefur á undanförnum árum gefið út fjölda vinsælla bóka sem prentaðar eru í stórum upplögum og á mörgum tungumálum. Auk bókanna hafa myndskreytingar hans birst á margvíslegu formi og kæta jafnan og uppfræða. Þá hafa myndir Brians kynnt ferðafólki, sem hingað kemur, ríkulegan þjóðararf okkar og opnað því dyr að tröllum, huldufólki, jólasveinum og fleiri verum.

Brian Pilkington er fæddur í Liverpool árið 1950. Að loknu grunn- og framhaldsskólanámi stundaði hann nám í myndskreytingum, m.a. við Liverpool School of Art (þar sem John Lennon hafði nokkru fyrr slitið gólfum!) og lauk BA-námi frá Leicester College of Art. Brian kom til Íslands í sumarfrí árið 1977 og er hér enn – sem betur fer!

Fyrsta bókin sem hann myndskreytti var Ástarsaga úr fjöllunum árið 1981 en síðan hefur hann sent frá sér fleiri rit en tölu verður á komið, síðast Gleðileg mjátíð (A very meowy Christmas 2023).

Honum er veittur riddarakross fyrir framlag sitt.

INNskráning

Nýskráning