Eiríkur Örn og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Bækurnar Armeló eftir Þórdísi Helgadóttur og Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl hafa verið tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 fyrir Íslands hönd. Tilkynnt verður um verðlaunahafa 21. október.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Fjórtán verk frá níu löndum eða málsvæðum eru tilnefnd 2025.

Umsagnir dómnefndar

Í umsögnum dómnefndar um þær íslensku bækur sem eru tilnefndar segir meðal annars:

Um Armeló eftir Þórdísi Helgadóttur

Þórdís býður lesendum upp í trylltan dans og þeytir þeim í óteljandi hringi þar sem hún ögrar skynjuninni með óvæntum rangölum, ólíkum sjónarhornum mismunandi sögupersóna, skemmtilegu tímaflakki og fjölskrúðugu persónugalleríi. Í bland við góðan húmor, ljóðrænan stíl, yfirnáttúrulega fléttu og sterkt myndmál skapar Þórdís einstaklega hrífandi rússíbanareið fyrir forvitna og hugrakka lesendur.

Um Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl

Í skáldsögu Eiríks er djarflega tekist á við samhengi og rök tilverunnar. Sögusviðið er Ísafjörður árið 1925, persónur eru fjölmargar og í rás sögunnar myndast umtalsverð spenna milli heimamanna og guðsmanna, þjóðtrúar og guðstrúar, trúar almennt og vísinda, siðmenningar og náttúrulögmála. Drykkjuskapur og lauslæti eru frekar regla en undantekning í fari bæði Ísfirðinga og prestastéttarinnar sem mætt er á staðinn. 

Við óskum Þórdísi og Eiríki Erni hjartanlega til hamingju!

INNskráning

Nýskráning