Fullt hús á fyrirlestri Magnúsar Þorkels

Mikil aðsókn var á fyrirlestur Magnúsar Þorkels Bernharðssonar í Bókabúð Forlagsins um helgina þar sem hann fjallaði um stöðuna í Mið-Austurlöndum í tilefni af útgáfu bókar sinnar Mið-Austurlönd: fortíð, nútíð og framtíð – uppfærð útgáfa

Húsið var fullt og gott betur; mæting var framar vonum og þurftu sumir gestir að standa á meðan á fyrirlestrinum stóð.

Magnús, sem er prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og einn helsti sérfræðingur Íslendinga í sögu svæðisins, fór yfir helstu sögulegu og pólitísku þætti sem mótað hafa þróun svæðisins og setti jafnframt samtímaviðburði í víðara samhengi.

Fyrirlesturinn vakti mikinn áhuga og tókst afar vel. Magnús fór á skýran og aðgengilegan hátt yfir sögulegan bakgrunn og samtímaviðburði á svæðinu og svaraði fjölda spurninga úr sal. Að fyrirlestri loknum spunnust upp líflegar og áhugaverðar umræður sem stóðu lengi fram eftir.

Forlagið þakkar öllum sem mættu kærlega fyrir komuna og Magnúsi sérstaklega fyrir fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur. Nánari upplýsingar um bókina má finna með því að smella HÉR.

INNskráning

Nýskráning