Guðrún Helgadóttir

Guðrún Helgadóttir látin

Guðrún Helgadóttir rithöfundur, fyrrverandi alþingismaður og forseti Alþingis er látin, 86 ára að aldri.

Guðrún fæddist í Hafnarfirði þann 7. september 1935 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hún gaf út sína fyrstu bók, Jón Odd og Jón Bjarna, árið 1974 tæplega fertug að aldri og var upp frá því einn vinsælasti og virtasti barnabókahöfundur Íslands. Alls sendi Guðrún frá sér á þriðja tug bóka sem þúsundir íslenskra barna hafa alist upp við og notið. Helsti styrkur Guðrúnar sem rithöfundar fólst að mati gagnrýnenda í þeirri virðingu sem hún bar fyrir börnum, jafnframt því að geta séð spaugilegar hliðar á flestum málum. Verk hennar hafa hlotið góða dóma hér heima og erlendis þar sem menn hafa skipað henni á bekk með barnabókahöfundum á borð við Astrid Lindgren, Thorbjörn Egner og Anne-Cath. Vestly. Árið 2005 kom út safn greina um verk Guðrúnar Helgadóttur eftir ýmsa fræðimenn undir heitinu Í Guðrúnarhúsi.

Guðrún Helgadóttir hlaut ýmiss konar verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin, Barnabókaverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur og Bókaverðlaun barnanna. Árið 2005 hlaut hún Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu og árið 2012 Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi, fyrir höfundarverk sitt.

Forlagið sendir ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur.

INNskráning

Nýskráning