Haukur Ingvarsson og Þórdís Helgadóttir tilnefnd til Maístjörnunnar

Ljóðabækurnar Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson og Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur eru tilnefndar til Maístjörnunnar.

Dómnefnd skipa Soffía Auður Birgisdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Birgir Freyr Lúðvígsson fyrir hönd Landsbókasafnsins.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 18. maí. Verðlaunafé er 350 þúsund krónur.

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.

INNskráning

Nýskráning