Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir

Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir er fædd árið 1972. Hún starfar sem hjúkrunarfræðingur en leggur auk þess stund á doktorsnám í félagsvísindum og sinnir kennslu.

Árið 2016 kom bók Aðalbjargar Samskiptaboðorðin út en þar skilgreindi hún og lagði fram leiðarvísi að góðum samskiptum með sex boðorðum; horfa, heilsa, hlusta, hljóma, hrósa og hjálpa. Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar kom út árið 2024 en þar skoðar Aðalbjörg einmanaleikann frá fjölmörgum hliðum, veltir fyrir sér hver séu einmana, hvenær og af hverju en leitast líka við að varpa ljósi á það sem einsemdin getur kennt okkur og hvernig bregðast megi við henni.

Aðalbjörg hefur einnig skrifað efni sem beint er að nemendum og fagfólki á sviði hjúkrunar, þar á meðal bókina Samfélagshjúkrun sem kom út árið 2021 og var tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis.

Adalbjorg_Stefania

INNskráning

Nýskráning