Alexander Dan er fæddur 1988 og býr í Reykjavík. Fyrsta skáldsaga hans Hrímland kom út 2014 en með henni skipaði hann sér sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins af yngri kynslóðinni. Umskrifuð og viðaukin útgáfa sögunnar kom út 2019 undir heitinu Shadows of the Short Days hjá einu virtasta fantasíuforlagi heims, Gollancz í Bretlandi, og í kjölfarið hjá Titan Books í Bandaríkjunum.
Alexander hefur alla tíð verið heillaður af furðusögum og gaf um tíma út tímaritið Furðusögur sem var fyrsta íslenska tímaritið helgað vísindaskáldskap, hryllings- og fantasíubókmenntum. Hann semur auk þess söngtexta og þenur raddböndin í svartmálmshljómsveitinni Carpe Noctem.