Anton Helgi Jónsson

Anton Helgi Jónsson fæddist í Hafnarfirði árið 1955 en hefur verið búsettur í Reykjavík lengst af. Hann gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 1974, Undir regnboga, en frumsamdar ljóðabækur hans eru orðnar ellefu talsins. Sú síðasta, Ég hugsa mig (2024), skartar teikningum eftir Sossu en þau Anton hafa unnið saman að margvíslegum verkefnum þar sem ljóð og myndlist mætast.

 

Anton Helgi hefur einnig skrifað eina skáldsögu, Vinur vors og blóma (1982) og leikritið Ófælnu stúlkuna (1994) sem Leikfélag Reykjavíkur setti á svið, ásamt leikþáttum fyrir Útvarpsleikhúsið. Árið 2009 hlaut hann Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Einsöngur án undirleiks“ sem vakti mikla athygli.

Anton_Helgi

INNskráning

Nýskráning