Bjarni Fritzson

 

Bjarni er fæddur árið 1980 og er með BS-gráðu í sálfræði og hefur sótt framhaldsmenntun á meistarastigi í félags-vinnusálfræði og jákvæðri sálfræði. Hann er fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta, þjálfari 20 ára landsliðs Íslands og meistaraflokks karla hjá ÍR og Akureyri. Bjarni er stofnandi samtaka íbúa í Breiðholti sem kallast Synir Breiðholts og hann var áður meðlimur í rapphljómsveitinni 3TanClan.

Bækur Bjarna um Orra óstöðvandi hafa slegið rækilega í gegn á undanförnum árum. Fyrir þær hefur hann hlotið Barnabókaverðlaun barnanna sex ár í röð og sýning Þjóðleikhússins á Orra óstöðvandi – ævintýrum Orra óstöðvandi og Möggu Messi var tilnefnd til Grímuverðlaunanna árið 2025 sem barnasýning ársins. Árið 2026 hlaut Bjarni heiðursverðlaun Íslensku hljóðbókaverðlaunanna fyrir ómetanlegt starf við fræðslu barna og ungmenna og framlag sitt til barnabókmennta.

Bjarni hefur um árabil staðið fyrir sjálfstyrkingarvinnu með börnum og unglingum. Hann tók sæti í borgarstjórn árið 2026 og er fulltrúi í skóla- og frístundaráði.

 

bjarni-fritzson-vefur-500x500-ny

INNskráning

Nýskráning